Glæsileg ný heimildarmynd um Sunnu Rannveigu var að koma á veraldarvefinn. Í myndinni er farið stuttlega yfir feril Sunnu hingað til og spjallað við æfingafélaga og vini.
Það er Bakland sem framleiðir heimildarmyndina en í myndinni koma fram menn eins og Conor McGregor, John Kavanagh, Paddy Holohan, Gunnar Nelson og Jón Viðar Arnþórsson.
Sunna mætir Ashley Greenway á föstudaginn í sínum fyrsta bardaga í Invicta. Bardaginn verður sýndur beint á Fight Pass rás UFC og ætti að hefjast fljótlega eftir miðnætti.