UFC 211 stefnir í besta bardagakvöld ársins hingað til (samkeppnin var þó ekki mikil). UFC staðfesti fyrr í kvöld bardaga Frankie Edgar og Yair Rodriguez.
UFC 211 fer fram í Dallas þann 13. maí og eru nú þegar mikill fjöldi af spennandi bardögum á kvöldinu. Það má segja að þetta sé bardagi á milli framtíðarstjörnu og goðsagnar í þessum léttari þyngdarflokkum.
Yair Rodriguez er einn sá allra skemmtilegasti og efnilegast í fjaðurvigtinni um þessar mundir. Mexíkóinn Rodriguez er 6-0 í UFC og hefur litið afskaplega vel út að undanförnu. Síðast sáum við hann vinna gamla brýnið B.J. Penn með afar sannfærandi hætti.
Frankie Edgar nældi sér í sigur á Jeremy Stephens á UFC 205 í nóvember. Þar áður tapaði hann í titilbardaga í fjaðurvigtinni fyrir Jose Aldo en þetta var hans annað tap gegn meistaranum.
UFC hefur þegar staðfest þessa bardaga á kvöldið.
Titilbardagi í þungavigt: Stipe Miocic gegn Junior dos Santos
Titilbardagi í strávigt kvenna: Joanna Jędrzejczyk gegn Jéssica Andrade
Veltivigt: Demian Maia gegn Jorge Masvidal
Léttvigt: Eddie Alvarez vs. Dustin Poirier
Fluguvigt: Henry Cejudo vs. Sergio Pettis
Fjaðurvigt: Frankie Edgar gegn Yair Rodriguez