Guðrún Björk Jónsdóttir kom sá og sigraði á Íslandsmeistaramóti ungmenna fyrr í mánuðinum. Hún sigraði bæði sinn þyngdarflokk og opinn flokk stúlkna. Við fengum þessa efnilega stelpu í skemmtilegt spjall.
Guðbrún Björk er 17 ára gömul og æfir hjá VBC í Kópavogi. „Ég byrjaði að æfa brasilískt jiu-jitsu í byrjun maí á þessu ári og því búin að æfa í rúmt hálft ár. Besta vinkona mín byrjaði að æfa mánuði á undan mér og dró mig með á æfingu. Fram að því æfði ég sund í mörg ár áður en ég byrjaði í jiu-jitsu en hafði aldrei áður æft bardagaíþróttir,“ segir Guðrún.
Guðrún Björk hafði áður keppt á hvítbeltingamóti VBC, Hvítur á leik, þar sem hún náði 2. sæti í sínum flokki og keppti einnig á Grettismótinu. „Mér fannst ganga bara rosalega vel á Íslandsmeistaramótinu. Ég stefni svo á að keppa á Íslandsmeistaramóti fullorðinna núna um helgina (23. nóvember) og einnig á Evrópumeistaramótinu í lok janúar,“ en VBC sendir hóp af keppendum á mótið.
Guðrún Björk setur markið hátt og hefur gjörsamlega fallið fyrir íþróttinni. „Ég stefni á að verða góður og vel virtur jitsari í framtíðinni með því að halda áfram að æfa á fullu undir leiðsögn Daða Steins hjá VBC. BJJ er það skemmtilegasta sem ég hef prófað og er það bókstaflega líf mitt.“
Við þökkum Guðrúnu Björk kærlega fyrir spjallið og óskum henni góðs gengis á komandi mótum.
Frábær stelpa!