Thursday, April 25, 2024
HomeForsíðaGunnar: Þetta er alveg ömurlegt

Gunnar: Þetta er alveg ömurlegt

Mynd: Mjölnir/Sóllilja Baltasardóttir.

Eins og við greindum frá í gær er Gunnar Nelson meiddur og getur því ekki barist gegn Neil Magny í maí. Þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir Gunnar sem hefur verið lengi á hliðarlínunni.

Gunnar meiddist á hné við æfingar um síðustu helgi og mun þurfa að fara undir hnífinn. Bardaga hans gegn Neil Magny í Liverpool þann 27. maí hefur því verið aflýst.

„Svekktur er ekki nægjanlega sterkt lýsingarorð til að segja hvernig mér líður. Þetta er alveg ömurlegt en ég get ekkert gert í þessu annað en að sætta mig það og líta á björtu hliðarnar. Ég get tekið margt jákvætt úr undrbúningsferlinu og ég mun halda áfram að vaxa sem bardagamaður þó svo að ég þurfi að vera á hliðarlínunni ögn lengur,” segir Gunnar er fram kemur í fréttatilkynningu.

Gunnar tapaði fyrir Santiago Ponzinibbio í júlí í fyrra en eftir rothöggið ákvað hann að taka sér frí frá keppni út árið. Hann var tilbúinn að berjast frá janúar en nú þegar hann er kominn með bardaga meiðist hann.

„Æfingar voru búnar að ganga frábærlega fram að því að þetta gerðist. Öflugir bardagamenn víðsvegar að úr heiminum eru búnir að vera með mér í æfingabúðunum og enn fleiri voru á leiðinni. Andinn hefur verið virkilega góður og mér hefur sjaldan liðið betur en einmitt núna. Eftir að hafa verið í talsvert löngu hléi frá búrinu þá fann ég sterkt hvað hungrið var farið að segja til sín og ég var farinn að hlakka virkilega mikið til að fara til Liverpool og minna á mig.”

Gunnar fer í aðgerð á morgun og verður fjarri góðu gamni í nokkrar vikur á meðan hann jafnar sig á meiðslunum.

„Ég vona að aðgerðin heppnist vel og að ég verði fljótt kominn á ról aftur. Ég ætti að geta byrjað að æfa af fullum krafti aftur upp úr miðju sumri og ég get þá gert mér vonir um að berjast með haustinu ef allt fer að óskum. Svona er bardagabransinn. Meiðsli eru hluti af þessu og ég innstilli mig bara á að koma sterkur til baka,“ segir Gunnar að lokum.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular