HomeInnlentHaraldur Arnarson tilkynntur fyrir Caged Steel 39

Haraldur Arnarson tilkynntur fyrir Caged Steel 39

Caged Steel 39 fer fram 29. mars í Doncaster, Englandi og eins og alltaf má búast við nokkrum fulltrúum frá RVK MMA. Í dag birtist tilkynning á instagram síðu Caged Steel þar sem Haraldur Arnarson var kynntur til leiks.

Haraldur barðist síðast í desember 2023 þegar hann þreytti frumraun sína sem atvinnumaður gegn afar sterkum andstæðingi, Paul Buckley. Haraldur mun sækjast eftir sínum fyrsta sigri á atvinnumannaferlinum í mars en hann á stórt verkefni fyrir höndum. Enginn andstæðingur var nefndur í tilkynningu Caged Steel en Haraldur staðfesti í samtali við MMA Fréttir að hann muni mæta Kunle Lawal sem er 1-1 sem atvinnumaður í MMA.

Lawal á mjög reynslumikinn áhugamannaferil að baki en hann barðist 19 sinnum á áhugamannastigi, á árunum 2016-2023, áður en hann fór yfir í atvinnumennsku. Af 19 bardögum sigraði hann 12 og tapaði 7. Lawal hefur barist tvisvar sinnum á atvinnumannastigi, sigrað einn og tapað einum. Síðasti bardagi hans var í júní í fyrra en hann var illa rotaður eftir aðeins 10 sekúndur. 

Haraldur kemur til landsins eftir sólarlandaferð í næstu viku og heldur þá undirbúningurinn áfram af fullum krafti en þó hann hafi verið í fríi hefur hann verið með hugann við komandi verkefni og verið að hlaupa og halda sér í formi.

Það stóð til að para Harald aftur saman við Gavin Lofts en Gavin, sem hefur einnig mætt Aroni Leó Jóhannssyni á atvinnumannastigi, var upphaflegi andstæðingurinn í atvinnumanna frumraun Halla. Gavin Lofts vildi þó færa sig niður í ofurléttvigt en Haraldur fer ekki neðar en veltivigt. Haraldur fékk þá þennan flotta andstæðing og gæti með sigri stimplað sig sterkt inn í atvinnumanna veltivigtina í Caged Steel. Liðsfélagi hans Aron Leó er auðvitað meistari þess þyngdarflokks en gæti vel stigið í burtu ef stærri tækifæri bjóðast honum eftir ótrúlegan árangur á síðasta ári.

Búast má við fleiri bardagamönnum frá RVK MMA á viðburðinum en Hákon Örn Arnórsson þurfti að draga sig úr sínum bardaga vegna meiðsla fyrr í vikunni og er Haraldur því sá eini í augnablikinu.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img
spot_img

Mest Lesið