Hekla Friðriksdóttir steig inn í búrið gegn ríkjandi Evrópumeistaranum Caroline Moller í Danmörku í dag, 29. ágúst. Hekla tók bardagann með frekar stuttum fyrirvara og sigraði Caroline með armbar í fyrstu lotu.
Fyrir bardagann lá í loftinu að þetta yrði klassískur striker vs. grappler bardagi þar sem Hekla yrði með yfirburði á gólfinu. Það tók Heklu rétt um 10 sekúndur að fá bardagann á gólfið en hún tímasetti double leg fellu eftir högg frá Carolie virkilega vel og þurfti ekki að eyða mikilli orku í að fá bardagann á gólfið.
Caroline ætlaði ekki að hafa miklar áhyggjur af stöðunni og reyndi að brosa þetta af sér. Hekla gerði hins vegar vel í að bæta stöðuna sína jafnt og þétt og komst úr half guard í mount og svo að lokum tók hún bakið á Caroline sem gerði vel í að verjast en þegar hún virtist ætla að ná að snúa Heklu af bakinu sínu setti Hekla upp þéttan armbar og neyddist Caroline til tappa.
Þetta er frábær sigur hjá Heklu sem færir hana í umræðuna um bestu bardagakonur í Evrópu en hún kemur til að mæta ríkjandi Norðurlandameistara þann 3. október næstkomandi á Glacier Fight Night 3 sem haldið verður í Framheimilinu.






