Hinn efnilegi og fjallmyndarlegi Tryggvi Elí barðist sinn annan bardaga í MMA um helgina en það var á hinu þekkta MMA Galla kvöldi í Danmörku. Þónokkrir Íslendingar hafa barist á þessu kvöldi en mótshaldarar leggja mikið upp úr flottri útsendingu og skemmtilegri sýningu fyrir fullu húsi af fólki. Tryggvi er Íslendingur búsettur er í Danmörku og kemur úr Metanoia gymminu í Sönderborg. Þetta var í annað skiptið sem Tryggvi berst á MMA Galla. Frumraunin reyndist erfið en Tryggvi mætti virkilega sterkur í búrið á laugardaginn og gjörsamlega straujaði andstæðinginn sinn Gorm Brandt Ebbesen.
Tryggvi og Gorm mættust snemma í fyrri hluti kvöldsins og virtist Tryggvi mjög staðráðinn í því að sækja sigurinn. Gorm var töluvert stærri, með langan ramma og nýtti lengdina sína í að lenda fínni 1 – 2 fléttu á Tryggva í upphafi viðureignarinnar. Tryggvi svaraði með því að skjóta í fellu og átti ekki erfitt með að setja Gorm í gólfið sem tókst engan veginn að skoppa á fætur aftur. Tryggvi festist örstutt í halfguard en gerði annars vel í að bæta stöðuna sína og endaði með bakið á Gorm og þéttan body lock. Gorm gerði ágætlega í að verjast til að byrja með en Tryggvi stjórnaði dananum algjörlega og ekki leið á löngu fyrr en hann sökkt inn read naked choke og fékk tappið frá Gorm. Bardaginn var einstefna nær allan tímann og má 18 ára framhaldsskólaneminn vera stoltur með sína frammistöðu í bardaganum. Tryggvi færir bardagametið sitt í 1 – 1 og hljómar ansi spenntur að komast aftur í búrið.
Tryggvi segist ætla að flytja til Íslands þegar hann hefur lokið skólagöngunni og stendur frammi fyrir skemmtilegu vali: Mjölnir eða Reykjavík MMA? Báðir klúbbarnir yrðu eflaust virkilega ánægðir með að fá unga efnið í sínar raðir.






