Ingþór Örn Valdimarsson er kominn með nýjan andstæðing fyrir bardaga sinn á FightStar bardagakvöldinu þann 7. október.
Fenrismaðurinn Ingþór Örn Valdimarsson mun snúa aftur í búrið í október, áratugi eftir sinn fyrsta MMA bardaga. Ingþór barðist á Adrenaline 1 bardagakvöldinu í Danmörku þann 5. maí 2007 en sama kvöld tók Gunnar Nelson sinn fyrsta MMA bardaga. Ingþór tapaði þeim bardaga en er nú loksins kominn með annan bardaga. Síðan Ingþór tók sinn fyrsta MMA bardaga hefur hann fengið svarta beltið í júdó og brasilísku jiu-jitsu og tekið nokkra box bardaga.
Ingþór átti upphaflega að mæta Dawid Panfil (0-0) í millivigt (84 kg) en Panfil slasaðist og getur því ekki barist. Í hans stað kemur öllu reyndari andstæðingur, Pelu ‘The Nigerian Diamond’ Adetola (3-6). Bardaginn fer fram í 88 kg hentivigt.
Sex Íslendingar keppa á FightStar 12 bardagakvöldinu þann 7. október í London. Bjarki Þór Pálsson verður í aðalbardaga kvöldsins en hann og Ingþór keppa atvinnubardaga þetta kvöld. Þeir Bjarki Pétursson, Björn Þorleifur Þorleifsson, Þorgrímur Þórarinsson og Magnús Ingi Ingvarsson keppa allir áhugamannabardaga. Þeir eru nú allir staddir í Fenri á Akureyri í æfingabúðum fyrir bardagana.