Íslandsmeistaramótið í brasilísku jiu-jitsu fer fram í dag, laugardag. Þetta er í tíunda sinn sem Íslandsmeistaramótið er haldið en mótið fer fram í húsakynnum Mjölnis.
Rúmlega 80 keppendur eru skráðir til leiks í ár frá sjö félögum. Keppt er í galla í 14 þyngdarflokkum karla og fjórum flokkum kvenna. Keppt verður annars vegar í flokkum blábeltinga og upp úr og hins vegar í hvítbeltingaflokkum en þetta er í fyrsta sinn sem keppt er í sérstökum flokkum fyrir hvítbeltinga á Íslandsmeistaramótinu.
Fyrstu glímur hefjast kl 11 en húsið opnar kl 10. Aðgangseyrir á mótið er ókeypis en mótið stendur fram eftir degi.
Hægt verður að fylgjast með gangi mála í rauntíma á meðan mótið fer fram á vef Smoothcomp hér.