Thursday, April 25, 2024
HomeForsíðaJon Jones flúði af slysstað samkvæmt sjónarvotti

Jon Jones flúði af slysstað samkvæmt sjónarvotti

Lyoto Machida vs Jon JonesNýjustu fréttir af máli Jones herma að hann hafi flúið af slysstað. Lögreglumaður sem var ekki á vakt kveðst hafa séð Jones hlaupa af slysstað.

Slúðurmiðillinn TMZ greindi frá þessu fyrir skömmu. Þó TMZ sé langt í frá að vera áreiðanlegur miðill hefur Brett Okomoto hjá ESPN birt frekari fregnir um málið og er hann talsvert áreiðanlegri.

Samkvæmt vitni hljóp Jones af slysstað eftir þriggja bíla árekstur. Bifreið Jones reyndist vera á leigu og var Jones skráður fyrir bifreiðinni. Jones er grunaður en lögreglan í Albuquerque hefur ekki enn náð tali af honum vegna málsins.

Brett Okomoto hefur haldið áfram að fjalla um málið á Twitter og vísar þar í lögregluskýrslu málsins.

Ariel Helwani hefur einnig tjáð sig um málið:

Eitt fórnarlamba slyssins var tvítug ólétt kona. Fyrstu fréttir á Twitter hermdu að kókaín hefði fundist í bifreiðinni en það virðist ekki vera rétt samkvæmt Okomoto. Marijúana pípa og marijúana fannst hins vegar. Jon Jones var eins og frægt er orðið sendur í sólarhringsmeðferð eftir að kókaín fannst í blóði hans á lyfjaprófi. Enn hefur ekkert heyrst í Jon Jones og er bardaginn enn á dagskrá á UFC 187 þann 23. maí.

Því meira sem kemur upp í málinu lítur þetta verr og verr út fyrir Jones. Það er ljóst að eitthvað mikið hefur gengið á aðfaranótt sunnudags hjá Jon Jones.

Uppfært: David Kano birti lögregluskýrsli málsins á Twitter:

 

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular