Friday, March 29, 2024
HomeErlentJon Jones: Nýtt upphaf

Jon Jones: Nýtt upphaf

Jon Jones var að vonum ánægður með sigurinn á Daniel Cormier í gær. Jones segir að þetta sé nýtt upphaf fyrir sig eftir erfiða tíma.

Jon Jones kláraði Daniel Cormier með rothöggi í 3. lotu í hörku bardaga. Cormier stóð vel í Jones áður en Jones vankaði Cormier með hásparki í höfuðið og kláraði hann svo með höggum í gólfinu. Jones hrósaði Cormier eftir bardagann og sagði að hann hefði klárlega bætt sig frá því þeir mættust síðast.

Jones sagði einnig að þetta væri nýtt upphaf fyrir sig eftir að hafa lengi verið í myrkrinu. „Þetta er nýtt upphaf og ég hef núna tækifæri til að gera betur. Ég er þekktur fyrir ýmislegt neikvætt en ég ætla að halda þessu ferðalagi áfram og koma íþróttinni á hærra stig,“ sagði Jones.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular