Thursday, March 28, 2024
HomeForsíðaKara með gull í Svíþjóð

Kara með gull í Svíþjóð

Fimm íslenskar stelpur kepptu á Golden Girl Championship boxmótinu í Svíþjóð um helgina. Kara Guðmundsdóttir tók gull í sínum flokki eftir þrjá bardaga.

Golden Girl Championship er aðeins fyrir konur og er þetta eitt stærsta kvenboxmót í heiminum með 368 keppendur frá 32 löndum. Keppt er í ólympískum hnefaleikum og stóð mótið yfir þrjá daga.

Fimm íslenskar stelpur kepptu á mótinu. Kara Guðmundsdóttir (HR/Mjölnir) Kristín Sif Björgvinsdóttir (HR/Mjölnir), Hildur Indriðadóttir (HFR), Margrét Guðrún Svavarsdóttir (HFR) og Kara Sif Valgarðsdóttir (HFR).

Á föstudeginum börðust þær Kara og Hildur sína fyrstu bardaga á mótinu. Báðar unnu þær sína bardaga og komust áfram. Á laugardeginum vann Kara sinn bardaga í undanúrslitum en Hildur þurfti að sætta sig við tap gegn eistneskri stelpu sem endaði á að vinna flokkinn. Kara Valgarðsdóttir og Margrét Guðrún kepptu einnig á laugardeginum en þær töpuðu báðar í undanúrslitum.

Á sunnudeginum keppti Kara í úrslitum í -60 kg flokki og vann á stigum. Þetta var þriðji bardagi hennar á jafn mörgum dögum og stóð hún uppi sem sigurvegari í flokknum.

Kristín Sif keppti einnig í úrslitum á sunnudeginum en hún fór beint í úrslit í sínum flokki. Kristín tapaði og hreppti því silfrið.

Flottur árangur hjá íslensku stelpunum á sterku móti.

Kara Guðmundsdóttir.
Mynd: Ásgeir Marteinsson/Mjölnir
Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular