Vigtunin fyrir UFC 193 fór fram fyrr í kvöld. Það var heitt í hamsi milli Rondu Rousey og Holly Holm.
Ronda Rousey lét Holly Holm heyra það í vigtuninni áðan. Holm hefur ávallt komið vel fyrir í viðtölum og borið virðingu fyrir meistaranum. Rousey sagði Holm ekki vera jafn ljúfa og í viðtölum heldur væri þetta allt uppgerð.
„Hún setti hnefann sinn í andlitið mitt, ég snerti hana ekki. Hún snerti mig og ég sagði henni að ég sæi í gegnum þessa gervilegu ljúfu hegðun. Þetta er allt uppgerð hjá henni, þangað til núna. Allt þetta tal um virðingu, þú að vera ljúf, ég sé núna að þetta er uppgerð og þú munt finna fyrir því á sunnudaginn,“ sagði Ronda Rousey við Joe Rogan í vigtuninni.
Joanna Jedrzejczyk var ógnandi tilburði í vigtuninni eins og henni einni er lagið.