Miðvikudagsgetraunin er fastur liður hér á MMA fréttum. Verðlaunin eru ekki af verri endanum, en sigurvegarinn fær máltíð að eigin vali fyrir tvo á Lebowski bar! Á Lebowski bar færðu frábæra hamborgara og sjeika! Getraunin er einföld, borin er upp spurning hér á síðunni á ýmsum formum og ef lesendur vita svarið senda þeir rétt svar á ritstjorn@mmafrettir.is. Dregið er svo úr réttum svörum. Til að vinna þurfa lesendur að vera með rétt svar og vera búinn að “like-a” Facebook síðu okkar. Vinsamlegast getið fulls nafns í póstinum. Svarfrestur rennur út á miðnætti í kvöld.
Matt Serra var þátttakandi í 4. seríu af The Ultimate Fighter raunveruleikaþættinum. Á neðangreindu myndbandi lendir hann í rifrildi við einn af BJJ þjálfurunum í seríunni, en hvað heitir BJJ þjálfarinn sem Serra þrætir við? Sendið fullt nafn á ritstjorn@mmafrettir.is
- Tappvarpið #141: Frábær sigur Gunnars og UFC 286 uppgjör - March 22, 2023
- Gunnar með flest uppgjafartök í sögu veltivigtarinnar - March 19, 2023
- Gunnar Nelson með sigur í 1. lotu - March 18, 2023