Hátt í 30 unglingar eru skráðir til leiks á Mjölnir Open unglinga sem fram fer í dag.
Í dag fer Mjölnir Open unglinga fram í Mjölniskastalanum, Seljavegi 2, og hefjast fyrstu glímur kl 11. Unglingar á aldrinum 12-17 ára keppa á mótinu en keppt er í þremur aldursflokkum (2001-2002, 1999-2000 og 1997-1998).
Keppendur koma frá fjórum félögum, Mjölni, Sleipni, VBC og Gracie. Keppt er í glímu án galla (nogi) og eru glímurnar styttri í unglingaflokkum heldur en í fullorðinsflokkum. Á mótinu verða vafalaust einhverjir af bestu glímumönnum framtíðarinnar og því tilvalið fyrir glímuáhugamenn að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.
Við munum birta úrslit úr mótinu um leið og það klárast.