Wednesday, April 24, 2024
HomeErlentMyndband: Conor reyndi að sparka í Khabib í vigtuninni - Drake á...

Myndband: Conor reyndi að sparka í Khabib í vigtuninni – Drake á sviðinu með Conor

Sjónvarpsvigtunin fyrir UFC 229 fór fram fyrr í kvöld. Það voru að sjálfsögðu smá læti í Conor er þeir mættust augliti til auglits í síðasta sinn fyrir bardagann.

Formleg vigtun fór fram fyrr í dag þar sem allir bardagamenn kvöldsins náðu vigt. Sjónvarpsvigtunin í kvöld er bara gerð fyrir áhorfendur og var höllin troðfull af Írum.

Það voru sömu lætin í Conor og vanalega í vigtuninni og voru örlitlar stimpingar á milli þeirra. Conor vildi komast nær Khabib er þeir stóðu andspænis hvor öðrum en Dana White, forseti UFC, vildi ekki hleypa þeim nær hvor öðrum. Smávægilegar stimpingar áttu sér stað og reyndi Conor að dangla aðeins í Khabib en var langt frá því að hitta.

Það vakti athygli að rapparinn Drake var á sviðinu með Conor og bar írska fánann á bakinu.

Það voru síðan aðeins meiri læti í þeim Alexander Volkov og Derrick Lewis.

Vigtunina má sjá í heild sinni hér að neðan.

Það var ekki bara hiti í bardagamönnunum en um leið og vigtunin kláraðist brutust út slagsmál meðal áhorfenda.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular