Léttvigtarmaðurinn Eddie Alvarez birti nýverið mynd af ljótum skurði á augabrún sinni. Skurðinn fékk hann í æfingabúðunum fyrir sinn síðasta bardaga.
Eddie Alvarez sigraði Anthony Pettis í janúar síðastliðnum. Er hann undirbjó sig fyrir bardagann fékk hann þennan ljóta skurð á æfingu. Höfuð Alvarez skall í höfuð æfingafélaga síns en Alvarez kenndi sjálfum sér um fyrir að vera ekki með höfuðhlíf á æfingunni.
Alvarez birti þessa mynd á Twitter nýverið og þakkaði lækninum Dr. Alan Brackup fyrir að gera svona vel að skurðinum.
Alvarez er ekki kominn með næsta bardaga en talið er að hann gæti mætt Nate Diaz síðar á árinu.