Gunnar Nelson mætir Leon Edwards á UFC bardagakvöldinu í London í mars. UFC birti í gær plakatið fyrir bardagakvöldið.
UFC heimsækir London þann 16. mars. Í aðalbardaga kvöldsins mætast þeir Darren Till og Jorge Masvidal en bardagi Gunnars verður næststærsti bardagi kvöldsins.
UFC birti plakatið í gær og þar má sjá Till, Masvidal, Gunnar og Edwards á plakatinu.
Miðasala á bardagakvöldið byrjar í vikunni en nánari upplýsingar um miðasöluna koma síðar í vikunni.