Shinobi War 7 fór fram í Liverpool í gær þar sem Mjölnir sendi þrjá fulltrúa. Bjarki Ómarsson náði glæsilegum sigri með rothöggi í gær sem má sjá hér að neðan.
Bjarki var fyrstur af Íslendingunum og vakti heldur betur athygli á sér. Hann sigraði andstæðing sinn með tæknilegu rothöggi eftir aðeins 19 sekúndur. Bjarki náði tveimur glæsilegum spörkum í röð og var fljótur að klára þetta.
Egill Øydvin Hjördísarson var einn af þremur Mjölnismönnum sem átti að keppa í gær en nokkrum tímum fyrir bardagann var þeim tilkynnt að andstæðingurinn myndi ekki mæta.
Hrólfur Ólafsson háði harðan bardaga í gær og mátti sætta sig við tap eftir tæknilegt rothögg í 3. lotu. Hrólfur var nálægt því að klára bardagann í fyrstu lotu en andstæðingurinn náði að þrauka út lotuna.
Rothöggið má sjá hér að neðan.