Conor McGregor var gestur í þætti Jimmy Kimmel í gær. Í þættinum talaði hann m.a. um framandi gæludýr og að sjálfsögðu um Jose Aldo.
Conor McGregor var sjálfum sér líkur og talaði um að hann hafi ekki enn mætt andstæðingi sem veitir þung högg. Þá velti hann því fyrir sér hvort hann ætti að fá sér tígrisdýr eða apa sem gæludýr eftir bardagann. Viðtalið má sjá hér að neðan.