Thursday, April 25, 2024
HomeErlentMyndband: Diego Brandao skallaður og yfirgaf búrið

Myndband: Diego Brandao skallaður og yfirgaf búrið

Fyrrum UFC bardagamaðurinn Diego Brandao var heldur betur í skrautlegum bardaga í Dagestan í kvöld. Brandao yfirgaf búrið áður en dómarinn hafði stöðvað bardagann og köstuðu áhorfendur rusli í búrið.

Diego Brandao mætti Akhmet Aliev í aðalbardaga kvöldsins á Fight Nights Global 73 í Dagestan fyrr í kvöld. Bardaginn fór ekki beint heiðarlega fram og var dómarinn í mestu vandræðum með að hafa stjórn á bardaganum.

Þegar þeir Brandao og Aliev voru í gólfinu skallaði Aliev í bringu Brandao. Dómarinn tók eftir því og þegar hann gerði hlé á bardaganum sparkaði Brandao í háls Aliev. Brandao hafði greinilega fengið nóg og ákvað að yfirgefa búrið. Áhorfendur voru ekki sáttir og hófu að kasta rusli í búrið.

Brandao kom þó aftur í búrið skömmu síðar en dómarinn hafði þá stöðvað bardagann enda bannað að yfirgefa búrið. Brandao tapaði því eftir tæknilegt rothögg í 2. lotu í furðulegum bardaga.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular