Veltivigtarmeistarinn Robbie Lawler kom með ískalt svar á dögunum er hann var spurður um hvernig bardagi milli hans og Conor McGregor hefði farið. Lawler sat ekki á svörunum og lofaði því að hann hefði tekið sál Conor ef þeir hefðu mæst.
Talið er að UFC hafi viljað setja saman þá Conor McGregor og Robbie Lawler í aðalbardagann á UFC 200 ef McGregor hefði unnið Nate Diaz í mars. Lawler gaf sitt mat á bardaga Diaz og McGregor.