Eitt af óvæntustu rothöggum ársins átti sér stað í gær á Bellator 139. Sparkboxarinn Joe Schilling var steinrotaður af Japananum Hisaki Kato.
Joe Schilling er afar fær sparkboxari og gert það gott í Glory sparkboxkeppninni á undanförnum árum. Hann snéri aftur í MMA í fyrra og var bardaginn hans í gær þriðji bardagi hans í Bellator.
Fyrir bardagann lofaði Schilling að Kato myndi fá ekta bandaríska flengingu. Það var á endanum Japaninn sem flengdi Schilling með þessu rothöggi í 2. lotu í gær. Seinna höggið var þó óþarfi.