Það var ekki bara Ben Askren sem söng lag á verðlaunahátíð Fighters Only. Núna hefur tímaritið gefið út lag Johny Hendricks „I Can’t Make the Weight“.
Lagið er sérstök útgáfa af laginu Can’t Feel My Face með The Weeknd. Myndbandið var frumflutt á verðlaunahátíð tímaritsins Fighters Only síðasta föstudag og sýnir Hendricks gera stólpagrín að sjálfum sér.