Khabib Nurmagomedov hitti Rússlandsforseta, Vladimir Putin, í gær eftir sigur sinn á Conor McGregor. Khabib átti fund með Putin ásamt föður sínum.
Khabib sigraði Conor McGregor á UFC 229 um helgina með hengingu í 4. lotu. Eftir bardagann stökk hann yfir búrið og hófust þá hópslagsmál.
Eftir bardagann sagði Khabib að pabbi sinn, Abdulmanap Nurmagomedov, myndi refsa sér miklu verr en NAC (íþróttasamband Nevada fylkis) gæti nokkurn tímann gert. Á fundi þeirra bað Putin Abdulmanap að vera ekki of harður við Khabib. Þá sagði Abdulmanap að það hefði verið erfitt að ala upp Khabib. Khabib sagði einnig að að hann vonast til að flestir hætti að tala um stökkið sitt úr búrinu og tali frekar um frammistöðuna í bardaganum.
Putin er mikill bardagaaðdáandi og hefur reglulega mætt á bardagakvöld í Rússlandi.
Khabib er ein stærsta íþróttastjarna Rússlands og er með 11,7 milljónir fylgjenda á Instagram.