Bretinn Michael Page var með enn eitt rothöggið í gær í Bellator. Page rotaði Evangelista ‘Cyborg’ Santos með fljúgandi hné í 2. lotu.
Bardaginn fór fram á Bellator 158 í gær í London en þetta var sjöundi sigur Page eftir rothögg. Page er nú ósigraður í 11 bardögum og er alltaf gaman að sjá hann berjast. Eftir bardagann setti hann strax upp Pokémon derhúfu og fagnaði vel.