Alan Jouban mætir Gunnari Nelson á morgun á UFC bardagakvöldinu í London. Þetta er í fyrsta sinn sem hann kemur til London og hefur hann verið að túristast á meðan beðið er eftir laugardeginum.
Jouban er búinn að taka allan pakkann. Buckingham höllin, Tower bridge og Abbey Road stúdíóið.
Í gær lét hann taka mynd af sér og liðinu sínu að labba yfir gangbrautina frægu á Abbey Road eins og á plötuumslaginu á samnefndri plötu.
Þetta er auðvitað bara venjuleg gangbraut og er ekki mikil þolinmæði sýnd þarna enda eflaust endalaust verið að taka sömu mynd. Vegfarandi á hjóli var næstum búinn að hjóla á Jouban eins og sjá má hér.