Boxgoðsögnin Roy Jones Jr. er enn að þrátt fyrir að vera orðinn 46 ára gamall. Um helgina mætti hann Enzo Maccarinelli í Rússlandi en var rotaður í 4. lotu.
Það er langt síðan Roy Jones Jr. var upp á sitt besta. Áður fyrr var hann besti boxari heims en má nú muna sinn fífil fegurri. Fyrir bardagann hafði Jones þó unnið átta bardaga í röð en ekki beint gegn sterkustu andstæðingunum.
Bardaginn um helgina fór fram í Rússlandi en þetta var fyrsti bardagi Jones þar í landi síðan hann fékk rússneskan ríkisborgararétt. Enzo Maccarinelli var góður boxari á árum áður en líkt og Jones er hann talsvert frá sínu besta í dag. Hér að neðan má sjá rothöggið.
https://www.youtube.com/watch?v=7bp1lQgxSMM