Rapparinn Snoop Dogg var fenginn til að horfa á klippur af Tyron Woodley og Stephen Thompson. Snoop var greinilega mjög hrifinn af báðum bardagamönnum miðað við klippurnar hér að neðan.
Þeir Tyron Woodley og Stephen Thompson mætast í aðalbardaganum á UFC 209 í kvöld. Bardaginn er endurat en fyrri bardagi þeirra endaði með jafntefli á UFC 205 í nóvember.