Ansi óheppilegt atvik gerðist í Bellator í gær. Darrion Caldwell sigraði bardaga sinn í fyrstu lotu og í fagnaðarlátunum tók hann afturábak heljarstökk beint á myndatökumann.
Caldwell sigraði Shawn Bunch eftir 2:35 í fyrstu lotu með hengingu. Caldwell er góður íþróttamaður og eftir bardagann klifraði hann upp á búrið og tók þetta huggulega stökk. Því miður þá hoppaði hann beint á myndatökumann sem féll niður fyrir vikið.
Caldwell bað konuna síðar afsökunar og á þessu slysi. Atvikið og afsökunarbeiðnina má sjá hér að neðan.
It’s okay everyone, Dawn’s alright! #Bellator143 @thewolf_mma pic.twitter.com/hpKirfROyp
— Bellator MMA (@BellatorMMA) September 25, 2015