Upptökur á fimmta þætti hlaðvarpsins okkar fóru fram í gær þar sem athyglin beindist að UFC 194. Núna eru minna en tvær vikur í UFC 194 og voru gestir þáttarins þeir Bjarki Ómarsson og Bjarki Þór Pálsson.
Bjarkarnir tveir kepptu báðir á Evrópumótinu á dögunum og nældi Bjarki Þór sér í Evrópumeistaratitilinn. Báðir eru þeir miklir MMA áhugamenn og eyddum við góðum tíma í spjalli um UFC 194. Þá ræddum við einnig um Rondu Rousey og Jon Jones svo fátt eitt sé nefnt.