Sláandi fréttir voru að berast rétt í þessu, Renan Barao hefur verið fjarlægður af UFC 177 bardagakvöldinu annað kvöld! Barao átti að berjast um titilinn gegn TJ Dillashaw en Joe Soto tekur hans stað.
Samkvæmt erlendum miðlum leið yfir Renan Barao þegar hann var að skera niður fyrir 135 punda takmarkið. Vegna þessa mun Renan Barao ekki berjast annað kvöld. Þetta eru sláandi fréttir fyrir UFC og alla bardagaaðdáendur enda er rúmur sólarhringur í bardagann. Barao er stór bantamvigtarmaður og hefur niðurskurðurinn lengi verið erfiður fyrir hann.
Í hans stað kemur UFC nýliðinn Joe Soto en hann átti upphaflega að berjast gegn Anthony Birchak annað kvöld. Hann ætti að vera í réttri þyngd og tilbúinn í bardaga á morgun en þetta er vægast sagt risastórt stökk fyrir hann. Soto er á sex bardaga sigurgöngu og fær nú tækifæri lífs síns annað kvöld.