spot_img
Sunday, December 22, 2024
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeErlentRonda Rousey mætir Holly Holm í janúar

Ronda Rousey mætir Holly Holm í janúar

ronda rouseyRonda Rousey tilkynnti rétt í þessu að næsti andstæðingur hennar verður Holly Holm. Bardaginn fer fram þann 2. janúar í Las Vegas.

Bardaginn verður aðalbardagi UFC 195 en Rousey tilkynnti þetta í Good Morning America fyrir skömmu. Búist var við að Miesha Tate myndi fá næsta bardaga en það yrði þriðja viðureign þeirra. Af einhverjum ástæðum hefur UFC ákveðið að gefa Holm tækifærið.

Holm er margfaldur heimsmeistari í boxi og hefur einnig ágæta reynslu í sparkboxi. Hún hefur sigrað báða sína bardaga í UFC en hefur ekki komið inn í UFC með þeim hvelli sem búist var við. Báðir sigrar hennar hafa verið eftir dómaraákvörðun.

Holm er besti boxarinn sem Rousey hefur mætt en mörgum finnst Holm ekki hafa gert nóg til að verðskulda bardaga gegn Rousey strax. Því hefur áður verið haldið fram að Holm sé stærsta ógn Rousey. Nú fáum við að sjá hvort það sé raunin.

Sjá einnig: Holly Holm berst á UFC 184 um helgina

spot_img
spot_img
spot_img
Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

1 COMMENT

  1. IMO þá eru þeir að rusha Holm þarna inn til að fá ferskt andlit á móti Rondu… Hefði viljað sjá Holm vaxa, þroskast og kannski taka eitt tap og koma sterkari til baka áður en hún fær titilskot.

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Most Popular