Ronda Rousey virðist hafa skipt um skoðun varðandi framtíð sína í MMA. Aðeins nokkrum mánuðum eftir lauflétta endurkomu sína í búrið segir fyrrverandi UFC stjarnan að hún sé tilbúin að íhuga annan bardaga.
Rousey sneri aftur til keppni fyrr á árinu eftir nærri áratugar fjarveru þegar hún sigraði Gina Carano með uppgjafartaki á aðeins 17 sekúndum á fyrsta MMA-viðburði Most Valuable Promotions (MVP). Fyrir bardagann hafði hún ítrekað gefið í skyn að þetta yrði hennar síðasti bardagi og að markmiðið væri að ljúka ferlinum á eigin forsendum. Endurkoman vakti gríðarlega athygli og viðburðurinn sló áhorfsmet á Netflix. Að meðaltali horfðu 12,4 milljónir manna á viðburðinn en 17 milljónir horfðu á aðalbardagann í beinni útsendingu.
Nú hefur Rousey hins vegar mildað fyrri yfirlýsingar sínar. Í nýlegu viðtali sagði hún að hún og teymið hennar ætluðu fyrst að fara yfir hvernig viðburðurinn hefði gengið og ræða hvaða möguleikar væru í boði. Hún útilokaði því ekki að stíga aftur inn í búrið ef rétta tækifærið byðist.
Rousey hrósaði jafnframt MVP og Jake Paul fyrir hvernig viðburðurinn var settur upp. Hún sagði að markmið samtakanna ætti að vera að halda áfram að gera hvern viðburð að stórum viðburði í stað þess að fylla dagatalið af vikulegum bardagakvöldum. Að hennar mati er það einmitt þessi sérstaka upplifun sem hefur vantað í MMA á undanförnum árum.
Í viðtalinu nýtti Rousey einnig tækifærið til að gagnrýna UFC og sérstaklega framkvæmdastjórann Hunter Campbell. Hún rifjaði upp að UFC hefði hafnað hugmynd hennar um bardaga gegn Gina Carano og sagði að sú ákvörðun hefði reynst mistök. Rousey telur að með því hafi UFC misst af einstöku tækifæri á meðan MVP hafi sýnt að enn sé hægt að skapa stórar og eftirminnilegar MMA-sýningar utan UFC.
Þó að ekkert hafi verið staðfest um næsta bardaga er ljóst að orð Rousey hafa kveikt nýjar vangaveltur. Ef hún ákveður að snúa aftur gæti hún orðið ein stærsta stjarnan í áframhaldandi uppbyggingu MMA-deildar MVP, sem hefur þegar vakið mikla athygli með fyrstu stórviðburðum sínum.
Hvort Rousey berjist aftur á eftir að koma í ljós. Það sem virtist fyrir nokkrum mánuðum vera endanleg kveðja gæti nú reynst aðeins nýr kafli á ferli konunnar sem breytti kvenna-MMA til frambúðar.






