Friday, April 26, 2024
HomeErlentSantiago Ponzinibbio vonast eftir endurkomu í haust eftir tveggja ára fjarveru

Santiago Ponzinibbio vonast eftir endurkomu í haust eftir tveggja ára fjarveru

Santiago Ponzinibbio hefur verið frá búrinu í tæp tvö ár vegna sýkingar. Hann býst við að snúa aftur í búrið í haust.

Santiago Ponzinibbio hefur unnið sjö bardaga í röð í veltivigt UFC – þar á meðal er umdeildur sigur gegn Gunnari Nelson árið 2017. Hann barðist síðast í nóvember 2018 þegar hann sigraði Neil Magny í Argentínu á heimavelli.

Síðan þá hefur Ponzinibbio barist við blóðsýkingu sem hefur haldið honum frá æfingum og keppni.

Í júní 2019 fékk Ponzinibbio bakteríu sýkingu í hnénu og þurfti umsvifalaust að fara í aðgerð. Ponzinibbio dvaldi í viku á spítala eftir aðgerðina en skömmu eftir að hann kom heim þurfti hann að fara aftur á spítalann. Ponzinibbio brást illa við lyfjagjöf og þurfti því að dvelja á spítala í viku.

Ponzinibbio átti síðan að mæta Robbie Lawler í desember 2019 en þurfti að draga sig úr bardaganum vegna sýkingar. Ponzinibbio segist núna vera orðinn heill heilsu og vonast eftir bardaga í haust. Hann hefur samið við umboðsmanninn umdeilda Ali Abdelaziz og gæti fengið stóran bardaga í endurkomu sinni.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular