Jon Jones birti á fimmtudaginn færslu á instagram þar sem stóð að hann myndi gefa frá sér stóra tilkynningu 24 klukkustundum síðar. Margir héldu að hann myndi tilkynna annað hvort næsta andstæðing eða þá að hann væri að leggja hanskana á hilluna, sumir héldu jafnvel að hann væri að fara að stofna rafmynt og allskyns hugmyndir aðdáenda fóru af stað.
Það kom svo í ljós að hann var að lýsa yfir stuðningi til Power of the Patients góðgerðasamtaka sem berjast fyrir bættu heilbrigðiskerfi í Bandaríkjunum. Ekki beint það sem bardagaáðdáendur voru að vonast eftir en færsluna hans Jones má finna hér að neðan:






