Friday, March 29, 2024
HomeForsíðaSunna snýr aftur í búrið í maí

Sunna snýr aftur í búrið í maí

Sunna Rannveig Davíðsdóttir mun loksins snúa aftur í búrið í maí eftir langa fjarveru. Sunna mun taka þátt í útsláttarmóti Invicta og getur átt von á því að berjast þrjá bardaga á einu kvöldi.

Fremsta bardagakona þjóðarinnar hefur glímt við þrálát handarmeiðsli sem hefur haldið henni frá búrinu í 20 mánuði. Núna hefur hún jafnað sig á meiðslunum og mætir hún í búrið þann 3. maí.

Þá verður á dagskrá nýtt mót hjá Invicta bardagasamtökunum sem kallast Pheonix rising. Um er að ræða útsláttarmót á einu kvöldi líkt og í fyrstu keppnunum í UFC. Átta konur keppa í mótinu og er þar Sunna á meðal keppenda.

Fyrirkomulagið er þannig að bardagarnir í fyrstu umferð og í undanúrslitum eru eingöngu ein fimm mínútna lota. Það þýðir að þær sem berjast hafa fimm mínútur til að tryggja sér sigur og áframhald í keppninni. Má því gera ráð fyrir stanslausum hasar. Útslitabardaginn er síðan hefðbundinn þriggja lotu bardagi. Þær sem komast í úrslit geta því átt von á því að berjast við þrjá andstæðinga á einu kvöldi.

Konurnar sem eru keppinautar Sunnu eru allar vel þekktar og hafa verið áberandi í íþróttinni á undangengnum misserum. Þetta eru þær Janaisa Morandin sem barðist um strávigtartitil Invicta fyrir ekki svo löngu síðan, Mizuki Inoue, Brianna Van Buren, Sharon Jacobson, Juliana Lima, Danielle Taylor og Kailin Curran. Þær þrjár síðastnefndu koma allar frá UFC til að taka þátt í þessari keppni.

„Ég hef beðið eftir að fá að sleppa dýrinu lausu mjög lengi og hlakka rosalega til að komast aftur í búrið þar sem ég er best geymd. Mér líður eins og skógarbirni sem er að vakna eftir langan vetrardvala, hungraður og hættulegur,“ segir Sunna í fréttatilkynningu.

„Keppnisfyrirkomulagið er aðeins öðruvísi en við höfum fengið að venjast en ég hef að vissu leyti gert þetta áður með góðum árangi á Evrópumótinu sem ég sigraði árið 2015 þar sem ég þurfti að berjast marga bardaga með stuttu millibili. Ég hef reynsluna og er búin að bæta mig mikið tæknilega síðan ég barðist seinast. Það verður dregið um það hver mætir hverri þegar nær dregur bardagakvöldinu en það skiptir mig nákvæmlega engu máli hverri þeirra ég mæti fyrst. Þær eru allar grjótharðar og eru því allar ekta andstæðingar fyrir mig,“ segir Sunna

Handarmeiðslin sem hafa haldið Sunnu frá keppni áttu sér upprunalega stað er hún barðist sinn annan atvinnubardaga gegn Mallory Martin á Invicta 22 bardagakvöldinu í mars 2017. Hún hélt þó ótrauð áfram að æfa og keppti svo aftur í júlí þrátt fyrir að finna fyrir töluverðum óþægindum. Í þeim bardaga, sem hún vann með yfirburðum gegn Kelly D ́Angelo, versnaði höndin þó til muna og var ljóst að hún þyrfti að komast undir læknishendur. Meiðslin reyndust óhefðbundin og það tók umtalsverðan tíma að greina þau, komast á rétta braut og finna út hvernig best væri að meðhöndla þau.

„Þetta var eitt skref áfram og eitt skref afturábak í marga mánuði. Oft var mér farið að líða eins og þetta væri alveg að smella en svo kom bakslag. Það var ekki fyrr en seinasta haust, rúmu ári eftir að ég barðist seinast, sem ég fór að finna raunverulegan mun og finna að ég væri í alvörunni á batavegi en ekki bara föst á sama stað.”

Sunna sat þó ekki auðum höndum á meðan hún jafnaði sig á meiðslunum. Hún hefur starfað sem einn af yfirþjálfurunum í Mjölni og jafnframt er hún sjálf búin að æfa af krafti allan tímann.

„Ég er búin að æfa allan tímann sem meiðslin hafa verið að gróa. Ég vissi að það myndi taka langan tíma fyrir höndina að jafna sig og það gerði að að verkum að ég gat gefið mér tíma til að virkilega pæla í smáatriðunum og rifja upp undirstöðuatriði bardagaíþróttanna. Ég er búin að leggja mikla vinnu í að laga þá hluti sem ég þurfti að laga til að geta náð almennilegum framförum. Að æfa framhjá meiðslum er eitthvað sem allt íþróttafólk þekkir og það er það sem ég er búin að vera að gera. Við það að geta ekki beitt höndinni almennilega er ég búin að þróa með mér nýjar hreyfingar og er búin að bæta við mig nokkrum nýjum vopnum. Ég get alveg fullyrt að ég er miklu heilsteyptari og fjölhæfari bardagakona en ég var áður en ég meiddist,“ segir Sunna.

Í desember síðastliðinn fóru Sunna og Anna Rakel, dóttir hennar sem er 14 ára gömul, til eyjunnar Phuket við Tælandsstrendur í æfingaferð og dvöldu þar í mánuð. Sunna bjó þar árið 2013 og hefur ávalt talað um þann tíma sem helsta orsakavaldinn í því að hún ákvað að gerast atvinnubardagakona. Þar keppti hún sína fyrstu bardaga og þar lagði hún grunninn að þeim bardagastíl sem einkennir hana.

„Ferðin til Phuket var nákvæmlega það sem mig vantaði uppá til að finna endanlega að ég væri tilbúin í slaginn aftur. Að skipta um umhverfi og vera á stað þar sem við mæðgurnar gátum bara verið að æfa, skoða fallega staði og njóta lífsins var í einu orði sagt æðislegt. Ég fann það úti að ég hlóðst öll upp og fylltist eldmóði. Phuket er einstakur staður og mér líður eins og þar sé hitt heimilið mitt. Ég á marga vini þarna og fólkið þarna er yndislegt. Þegar við komum svo aftur heim í janúar þá fann ég að ég var klár í næsta bardaga. Núna er hann staðfestur og ég get varla beðið.”

Sunna stefnir langt með sinn bardagaferil en gerir sér fyllilega grein fyrir því að það þarf að taka eitt skref í einu.

„Núna held ég bara áfram þaðan sem frá var horfið áður en ég meiddist. Ég ætla langt í þessari íþrótt og ég er að fá frábært tækifæri til að minna hressilega á mig í þessari útsláttarkeppni sem ég er með fyrir framan mig. Hvað gerist í kjölfarið kemur bara í ljós en ég er með góða tilfinningu fyrir þessu og veit að ég mun mæta sterkari en ég hef nokkurn tímann verið til leiks,” segir Sunna að lokum.

Þessi viðburður er stærri um sig en hin hefðbundnu bardagakvöld Invicta FC. Bardagakvöldið fer fram í Memorial Hall viðburðahúsinu í Kansas City þar sem 3500 manns komast í sæti. Sent verður beint út á UFC Fight Pass og vonandi einnig á Stöð 2 Sport.

 

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular