Í 17. þætti Tappvarpsins fórum við aðeins yfir komandi bardaga Gunnars Nelson gegn Dong Hyun Kim, UFC 203 sem fram fer um helgina og margt fleira.
Bardagi Gunnars Nelson og Dong Hyun Kim var staðfestur nýlega en bardaginn verður aðalbardaginn á UFC bardagakvöldinu í Belfast þann 19. nóvember. Ljóst er að Dong Hyun Kim er feikilega sterkur andstæðingur og verður þetta frábær prófraun fyrir Gunnar.
UFC 203 fer fram um helgina og fórum við vel yfir bardagakvöldið. Stipe Miocic og Alistair Overeem mætast í aðalbardaga kvöldsins þar sem þungavigtarbeltið verður í húfi. Þá fórum við einnig yfir hin ýmsu mál svo sem Demian Maia, Donald Cerrone vs. Robbie Lawler og bardaga Sunnu í Invicta.