Fyrsta Tappvarp ársins er komið en í þættinum fórum við vel yfir UFC 207 og Rondu Rousey. Þá fórum við aðeins yfir árið 2016 sem var frábært ár í bardagaheiminum.
Ronda Rousey tapaði fyrir Amöndu Nunes á UFC 207 og fórum við vel yfir bardagann og framtíð Rondu í MMA. Amöndu Nunes eru allir vegir færir eftir sigurinn og verður áhugavert að sjá hversu stór stjarna hún getur orðið.