Haraldur Dean Nelson var gestur okkar í 29. þætti Tappvarpsins. Í þættinum ræddum við um bardaga Gunnars gegn Alan Jouban, nýja eigendur UFC, Conor vs. Floyd Mayweather og margt fleira.
Haraldur Dean Nelson er faðir og umboðsmaður Gunnars og framkvæmdastjóri Mjölnis. Hann er feginn því að Gunnar skuli vera kominn með bardaga og lýst vel á Alan Jouban.
Þá ræddum við um stressið sem fylgir því að fylgja syni sínum í búrið, breytingar á UFC, vafasöm tilboð og margt fleira.