Nýjasta Tappvarpið er sennilega það leiðinlegasta sem við höfum tekið upp eftir svekkjandi fregnir af meiðslum Gunnars. Auk þess að ræða um meiðslin förum við aðeins yfir Bellator þungavigtarmótið og fleira.
Gunnar Nelson hefur því miður þurft að draga sig úr bardaga sínum gegn Neil Magny í Liverpool í maí. Gunnar fór í aðgerð í gær og er búist við að Gunnar verði 8-10 vikur frá.
Þáttastjórnendur voru augljóslega mjög svekktir með tíðindin og var þátturinn því bara frekar leiðinlegur. Leiðinlega þáttinn má hlusta á í heildinni hér að neðan.