Nýjasti þátturinn í hlaðvarpi MMA Frétta er kominn. Þátturinn hefur fengið nafnið Tappvarpið og mun framvegis heita það.
Í þættinum ræddum við um UFC 200, bardagakvöldið í Brisbane um nýliðna helgi og komandi bardagakvöld í Zagreb í Króatíu.
Upptökur fóru fram í gær áður en MMA var lögleitt í New York ríki og því fórum við ekkert á þær slóðir. Hægt er að hlusta á þáttinn hér að neðan.