Þriðjudagsglíman að þessu sinni er æfingaglíma á milli tveggja goðsagna úr ólíkum áttum. Marcelo Garcia er vel þekktur sem einn besti jiu jitsu glímukappi í heimi. Hann hefur glímt við alla þá bestu en hér en vinaleg æfingaglíma á milli hans og Ben Askren. Askren er afburða íþróttamaður í „freestyle wrestling“ og keppti til að mynda á Ólympíuleikunum. Þá er hann fyrrverandi Bellator meistari í veltivigt og enn ósigraður. Eins og flestir vita er Askren frægur fyrir að nota kæfandi glímustíl sinn til að gjörsigra hæfileikaríka andstæðinga í MMA. Spurningin er, hvernig virkar glíman á móti jiu jitsu snillingi eins og Garcia? Askren er sá hárprúði.
Latest posts by Óskar Örn Árnason (see all)
- Óskalisti Óskars 2021 - January 2, 2021
- 10 áhugaverðustu MMA bardagararnir í mars 2020 - March 2, 2020
- 10 áhugaverðustu MMA bardagarnir í febrúar 2020 - February 3, 2020