0

Þriðjudagsglíman: Þráinn Kolbeinsson gegn Gunnar Johansen

Þriðjudagsglíman þessa vikuna er frá Danish Open um síðustu helgi. Þar glímdi Þráinn Kolbeinsson (Mjölnir) við Gunnar Johansen (Hilti Ystad). Glíman var úrslitaglíman í +100,5 kg flokki brúnbeltinga.

Mótið fór fram um síðustu helgi og tóku átta íslenskir glímukappar þátt. Þráinn Kolbeinsson úr Mjölni átti upphaflega að keppa í -94 kg flokki brúnbeltinga en sá flokkur féll niður vegna lítillar þátttöku. Hann var því færður í +100,5 kg flokk brúnbeltinga þar sem glíman fór fram.

Glímuna má sjá hér að neðan en Kjartan Auðunson sá um upptökur og þökkum við honum kærlega fyrir það! Þráinn er einn af 15 Íslendingum sem keppir á Copenhagen Open nú um helgina.

Pétur Marinó Jónsson

Pétur Marinó Jónsson

Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.