Þriðjudagsglíman að þessu sinni er úrslitaglíman í opna þyngdarflokknum í no-gi heimsmeistaramótinu sem fram fór 4. og 5. október síðastliðinn. Glíman var mjög áhugaverð en þar mættust þeir Yuri Simões og jiu-jitsu stjarnan Keenan Cornelius en Simões keppir einmitt í Metamoris 5 á móti Rafael Lovato jr. þann 22. nóvember.
Það er best að segja sem minnst um hvernig glíman fór en látum það nægja að segja að hún vakti mikla athygli.