Friday, April 19, 2024
HomeForsíðaÞrír sigrar og tvö töp á boxmóti í Grænlandi

Þrír sigrar og tvö töp á boxmóti í Grænlandi

Fimm keppendur frá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur kepptu á boxmóti í Grænlandi í gær. Þrír sigrar og tvö töp var niðurstaða kvöldsins.

Sex keppendur héldu til Grænlands á fimmtudaginn til að keppa á stórum boxviðburði í Nuuk. Því miður féll bardagi Elmars Freys Halldórssonar niður og fékk hann því ekki að keppa eins og til stóð.

Bardagarnir voru sýndir í beinni útsendingu í grænlenska ríkissjónvarpinu en um 1000 áhorfendur voru í salnum.

Lisa Billing var fyrst af keppendum HR/Mjölnis og vann sinn bardaga eftir dómaraákvörðun. Garpur Fletcher var svo næstur en hann gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn bardaga með tæknilegu rothöggi í 2. lotu. Venet Banushi vann svo sinn bardaga eftir dómaraákvörðun.

Heba María Ægisdóttir tapaði sínum bardaga eftir klofna dómaraákvörðun í hörku viðureign. Það var svo Sigurjón Rúnar Vikarsson sem var í síðasta bardaga kvöldsins en hann tapaði einnig eftir klofna dómaraákvörðun í flottum bardaga.

Flott frammistaða hjá keppnishópnum en öll voru þau að taka sína fyrstu boxbardaga nema Sigurjón Vikar.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular