Ótrúlegu bardagakvöldi var að ljúka hér í Las Vegas. Conor McGregor tókst að sigra Chad Mendes með tæknilegu rothöggi í lok 2. lotu.
Stemningin hjá Írunum er lygileg núna! Þeir eru syngjandi og trallandi og gjörsamlega ærir af fögnuði. Þeirra maður, Conor McGregor, var að sigra bráðabirgðarbeltið í fjaðurvigtinni.
McGregor byrjaði snemma að drulla yfir Mendes í upphafi bardagans og pressaði hann upp við búrið. Chad Mendes ógnaði vel sjálfur og náði fellu. Í gólfinu át McGregor þungan olnboga sem opnaði skurð á McGregor. McGregor tókst að standa upp en um tíma raðaði McGregor inn höggunum standandi. Mendes sigraði þó lotuna.
Í 2. lotu tókst Mendes að ná McGregor niður og hélt honum þar í langan tíma. Mendes reyndi „guillotine“ hengingu sem McGregor tókst að snúa sér úr og standa svo upp. Þá byrjaði McGregor að raða inn höggunum á Mendes sem virtist þreyttur.
Eftir harða beina vinstri féll Mendes niður og kláraði McGregor Mendes eftir 4:57 í 2. lotu. Herb Dean stöðvaði bardagann þar sem honum fannst Mendes vera búinn.
Conor McGregor er því bráðabirgðarmeistari fjaðurvigtarinnar og mun mæta Jose Aldo síðar á árinu.
UFC 189 er besta bardagakvöld sem ég hef séð á ævinni! Maður var hálf klökkur þarna í endann. #bestufccardever
Pétur þú ert lukkunar pamfíll að hafa upplifað þetta live.
UFC 189 er besta bardagakvöld sem ég hef séð á ævinni! Maður var hálf klökkur þarna í endann. #bestufccardever
Pétur þú ert lukkunar pamfíll að hafa upplifað þetta live.