UFC staðfesti í morgun bardaga Gunnars Nelson gegn Leon Edwards í London í mars. UFC staðfesti einnig aðalbardaga kvöldsins hjá Darren Till gegn Jorge Masvidal.
Gunnar Nelson vildi berjast aftur sem fyrst eftir sigurinn á Alex Oliveira í lok desember. Frá upphafi árs hefur verið leit að andstæðingi en í gær bárust þær fréttir að Gunnar myndi mæta Leon Edwards.
Á sama tíma fréttist að Darren Till myndi mæta Jorge Masvidal í aðalbardaga kvöldsins en báðir bardagarnir hafa nú verið formlega staðfestir af UFC:
Ooosh! ?@Leon_EdwardsMMA vs @GunniNelson is official for #UFCLondon! Get your tickets early ➡️ https://t.co/tc6Yq6reYh pic.twitter.com/bNcGRAdBlG
— UFC Europe (@UFCEurope) January 17, 2019
It’s official!! @DarrenTill2 vs. @GamebredFighter is your #UFCLondon ?? main event!
? https://t.co/9r2p6wxIAC pic.twitter.com/oSZ4ex5H3p
— UFC Europe (@UFCEurope) January 17, 2019
Það ætti því að vera óhætt fyrir bardagaaðdáendur hér heima að kanna flug og gistingu í London. Bardaginn fer fram í The O2 Arena þann 16. mars en miðasala á bardagakvöldið hefst í lok mánaðar.