Friday, March 29, 2024
HomeErlentUFC staðfestir bardagakvöld í Belfast í nóvember

UFC staðfestir bardagakvöld í Belfast í nóvember

ufc belfastUFC mun heimsækja Belfast þann 19. nóvember. Þetta kom fram í fréttatilkynningu frá UFC en þetta verður síðasta UFC bardagakvöldið í Evrópu á þessu ári.

UFC hefur heimsótt Dublin undanfarin tvö ár en í þetta sinn vildu bardagasamtökin heimsækja Norður-Írland. UFC hefur áður heimsótt Belfast en UFC 72 fór fram í Belfast í júní 2007 þar sem þeir Rich Franklin og Yushin Okami mættust í aðalbardaga kvöldsins.

Almenn miðasala hefst þann 23. september en meðlimir í Fight Club aðdáendaklúbbnum geta keypt miða tveimur dögum fyrr eða þann 21. september. Bardagakvöldið fer fram í SSE Arena í Belfast og má búast við um 8.000 miðum í boði.

Gunnar Nelson er auðvitað mjög vinsæll á Írlandi og gæti fengið pláss á bardagakvöldinu.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular