Svo virðist vera að hætt sé við bardagann á milli Chael Sonnen og Wanderlei Silva. Í stað Silva kemur hinn ávallt skrautlegi Vitor Belfort en bardaginn mun fara fram á UFC 175.
Belfort var upprunalega ætlað að keppa á móti Chris Weidman fyrir millivigtarbeltið á þessu sama bardagakvöldi en vegna nýlegra breytinga á lyfjareglum var honum skipt út fyrir Lyoto Machida. Því hlítur það að teljast vera salt í sárið að þurfa að keppa á sama kvöldi og Weidman gegn Machida en með sigri á Sonnen er Vitor vís með það að fá annað tækifæri á titlinum.
Margir verða eflaust vonsviknir vegna þessara frétta en rígurinn milli Sonnen og Silva hefur verið til staðar í dágóðan tíma sem hefur leitt til margra skemmtilegra uppákomna og riflilda. Var þeim ætlað að berjast eftir að hafa þjálfað andspænis hvor öðrum í raunveruleikaþáttunum TUF Brazil. Þar lentu þeir jafnvel í áflogum við upptökur þáttarins þegar æst riflildi á sviðinu enduðu með slagsmálum og þurfti að aðgreina þá frá hvor öðrum.
Það má því segja að spádómur Chael Sonnen hafi ræst en hann grínaðist oft með það í viðtölum að Wanderlei Silva myndi aldrei þora að berjast við sig og myndi reyna koma sér undan bardaganum á hvaða hátt sem hann gæti. Bardaginn milli þeirra mun þó ekki gerast í bráð ef nokkurn tíman. Það má þó telja líklegt að Sonnen skori Silva strax á hólm skildi hann tapa á móti Vitor Belfort.
Erfitt er að ímynda sér næsta skref fyrir Wanderlei Silva þar sem þetta á eftir að setja svartan blett á annars glæstan feril hans. Hann er nú orðinn 37 ára gamall og ekki margir stórir bardagar sem eru honum í boði eins og er. Hugsanlega gæti hann fengið að keppa aftur á móti gömlum kempum eins og Dan Henderson.